Hefur þú upplifað einkennilegan en alls ekki óþægilegan fiðring fara um þig á meðan þú vafraðir um þessa vefsíðu? Læddist að þér sú hugsun að ef til vill væri ekki bara frábært að gista á Hótel Glym heldur beinlínis vinna þar? Leyfðu okkur að fræða þig um að þessar tilfinningar og hugsanir eru mjög eðlilegar: Það er mjög gefandi lífsreynsla að vinna hjá og með okkur. Ef þig langar til að hlusta á hjarta þitt og sækja um, eða vita meira, sendu okkur þá línu á hansina@hotelglymur.is






