Hótel Glymur opnaði í september 2001 og hefur frá upphafi verið rekið af þeim hjónum Jóni Rafni Högnasyni og Hansínu B. Einarsdóttir. Allt húsið var endurbætt árið 2006 og allar innréttingar í húsinu unnar í samvinnu við innlenda og erlenda hönnuði og listamenn.
Þannig er hvert herbergi einstakt og mikið af húsgögnum eru handsmíðuð. Árið 2007 bættust svo við 3 svítur sem allar hafa sérsvalir og garð. Árið 2009 verða opnuð 6 lúxushús sem eru í suðurhlíðum Glyms og er hvert hús með eigin þema.
Gangurinn, þar sem svíturnar liggja, heitir Skroppugangur en Skroppa var talin ein magnaðasta tröllkonan hér um slóðir, göldrótt með afbrigðum og fylgin sér.
Svíturnar eru allar tengdar Hallgrími Péturssyni presti, sálmaskáldi og hagyrðingi og konu hans Guðríði Símonardóttur. Í svítunum er meðal annars að finna ljóð Hallgríms og ritverk um hann og hans störf, ásamt upplýsingum um Guðríði og hennar lífshlaup. Á glergluggum á bar er einnig að finna nokkur ljóða Hallgríms, en þekkastur er Hallgrímur fyrir Passíusálmana. Hallgrímur gegndi embætti Saurbæjarprests frá árinu 1651 til 1669.
Sagan segir að hótel Glymur sé byggt á krossgötum álfa og huldufólks og því sé allt svæðið afar sérstakt og hér sé góð og hrein orka. Umhverfis húsið er skemmtilegur álfagöngustígur yfir að bæjargilinu þar sem álfarnir eru sagðir búa. Gott er að standa á gilsbrúnni og hugsa fallega og jákvætt um framtíðina.






