Þorparinn - Opnuartilboð í Þorpinu
Viltu verða Þorpari - Vinur Þorpsins við Hótel Glym?
Þá ertu skráð/ur sem áhugamaður um Þorpið okkar og átt kost á ýmsum sértilboðum sem verða í gangi á næstunni.
Til þess að vera Þorpari, þarft þú að hafa áhuga á því að nýta þér glæsilega aðstöðu, fallega náttúru og góða þjónustu í næsta nágrenni við höfuðborgarsvæðið.
Brúðkaupnóttin í Hótel Glym
Gerðu eftirminnilegasta dag ævi þinnar fullkomlega ógleymanlegan í rómantískasta umhverfi sem þú getur fundið. Upplifðu fyrstu dagana af restinni af ævinni með elskunni þinni í brúðkaupssvítunni eða lúxushúsunum okkar í dásamlegu dekri innan um glóandi norðurljós og fallega náttúru. Við bjóðum þrjár leiðir til að fullkomna daginn.
Krydd og kossar
Þú átt skilið að hafa það svolítið notalegt. Þess vegna býður Hótel Glymur upp á þennan gourmet afslöppunarpakka, sem inniheldur hið fjölbreyttasta dekur fyrir alla heimsins mestu nautnaseggi. Þetta er okkar vinsælasti.
Krydd og Kossar plús
Smart tilboð með gistingu í tvær nætur, morgunverði, einum góðum kvöldverði og einum léttum.






